|
Talning
Fyrir 1428 dögum
þá kem ég heim
|
23.03.2008 03:47:56 / joninatryggva
Hæhæ, Vorum að koma til Managua. Erum búin að vera á ströndinni síðustu þrjá daga. Það var mjög léleg nettenging þar svo að ég gafst upp á að reyna að skrifa blogg. Það var alveg ótrúlega fallegt þarna og sjórinn alveg geggjaður. Það kom reyndar soldið fyrir í dag sem er mér efst í huga akkúrat núna og ætla því aðeins að segja frá því. Við vorum að leika okkur í sjónum, alveg geggjaðar öldur og rosa gaman þegar Heili byrjar allt í einu að öskra. Á sama tíma finn ég fyrir fiski við lappirnar á mér og byrja líka að koma mér í land. Við höfðum stundum áður fundið fyrir slímugum fiskum og fannst það pínu óþægilegt og öskruðum oftast þegar það gerðist svo að ég hélt að þetta væri bara svipað og hin skiptin, s.s. bara venulegur fiskur. En það var ekki því hann hafði skorið djúpt sár við öklann á Heili (fengum að vita síðar að þetta var "stingraie", veit ekki nafnið á íslensku) . Ég og Victoria, konan hans Guillermo, náðum að bera hana upp á ströndina og ég byrjaði að góla og veifa eins og brjálæðingur til strákanna sem voru soldið í burtu. Þeir héldu auðvitað fyrst að við værum bara að vinka en áttuðu sig fljótlega og komu til okkar. Sem betur fer var slysastofa 3 km í burtu og náðum við að koma henni þangað á ca 15 mínútum sem voru samt alveg ótrúlega lengi að líða. Sem betur fer náði Roman að stoppa blæðinguna á leiðinni og þegar við komum þangað sáum við að þetta leit ekki eins illa út og við héldum. Það þurfti samt að sauma nokkur spor og núna skoppar hún um á einum fæti. Frekar óhugnalegt alltsaman en sem betur fer voru aðstæður þannig að við gátum komið henni fljótt til læknis. Ætla ekki að skrifa mikið meira núna, þarf að skrifa smá grein með Heili og er orðin soldið þreytt. Ég ætla samt að reyna að setja inn mynd sem við tólum í blautmyllunni þar sem við liggjum í þvegnum kaffibaunum. Ekki í gerjunartanknum sjálfum því það hefði ekki verið beint geðslegt heldur í kari þar sem það er búið að skola þær. Reyni líka að setja myndir frá ströndinni.. Skrifa meira um síðustu daga á morgun Gleðilega páska
»
15.03.2008 15:42:46 / joninatryggva
Ég er búin að setja inn myndir undir "Nýjar myndir" Ég hef ekki tíma núna til að skrifa við þær en geri það við fyrsta tækifæri. Þetta er blanda af myndum sem ég hef tekið síðustu mánuði.. Vona að þið getið lesið síðustu færlsu, veit ekki af hverju hún varð rauð:/ Vil svo bara ítreka það sem ég sagði þar með könnunina sem ég vil biðja ykkur um að taka fyrir mig. Linkurinn er á síðustu færslu hér að neðan TAKK FYRIR! Hafið það gott, ég er farin í sveitina... p.s. fékk pínu klikkaða hugmynd um daginn um að láta taka mynd af okkur ofan í " fermentation tank" sem er eins og risa kar þar sem baunirnar eru látnar gerjast eftir að þær eru þvegnar. Svo ég vona að við getum gert það í þessari ferð og set þær svo hérna inn eftir helgi
»
15.03.2008 00:31:34 / joninatryggva
Hæhæ,
Komin helgi enn og aftur, og styttist alltaf í að ég komi heim:/ Hlakka auðvitað til að hitta ykkur öll en það er samt svo æðislegt hérna svo að það verða ansi blendnar tilfinningar við heimförina. Hingað til er þetta búið að vera geggjuð upplifun og búin að læra svo miklu meira um kaffi, alveg ótrúlegt. Hlakka til að deila reynslunni með öllum kaffivinum mínum heima. Er byrjuð að plana fyrirlestur sem ég ætla að athuga hvort ég geti flutt þegar keppnin verður í lok apríl. Ef eithvað af ykkur kaffivinum mínum heima les þetta blogg þá vil ég segja ykkur frá því að Roberto og samtökin sem fengu okkur hingað vilja gjarnan fá fleiri kaffibarþjóna til að hjálpa þeim með ýmis verkefni sem þeir eru að undirbúa og það sem fyrst. Endilega hafið samband við mig ef þið hafið áhuga og látið alla sem eru í kaffinu vita
Erum búin að vera að þjálfa kaffibarþjóna alla vikuna. Í dag var mjög skemmtilegur dagur, ég og Heili vorum að útbúa alls konar drykki og ljósmyndari var að taka myndir af þeim. Núna erum við á hóteli til að komast á netið og ætluðum svo að fara heim að borða en Roberto var að hringja rétt áðan og bað okkur um að koma aftur á skrifstofuna því það er smá veisla þar núna og hann vill kynna okkur fyrir vinum sínum þar.. Já allt er mjög spontant hérna, sem betur fer erum við íslendigar frekar spontant fólk, ekki eins og danirnir!
Fengum líka að vita í dag að við erum að fara til Matagalpa í fyrramálið, þar sem kaffiekrurnar eru, og verðum þar fram á miðvikudag. Erum að fara að búa til blöndur með þeim og einnig finna bestu ristunina fyrir hverja tegund af kaffi. Bæði sem þau geta notað fyrir viðskiptavini sína en líka búa til blöndu til að senda í keppnina um hvaða kaffi Nicaragua meistarinn mun nota á Heimsmeistaramótinu í Kaupmannahöfn í sumar. Við munum svo, ásamt fleiri dómurum, velja þessa blöndu 26. mars, daginn áður en ég fer héðan. Spennóspennó
Ég get verð því miður að fara fljótlega í þessa veislu en ef ég hef tíma þá ætla ég að reyna að setja inn nokkrar myndir, ég fann nefnilega loksins snúru til að hlaða myndum af myndavélinni minni
En ég vil biðja ykkur um að svara könnuninni sem er á linknum hér að neðan og senda hana á ALLA sem þið þekkið! Þetta er fyrir Markaðsfærslu þjónustu kúrsinn sem ég er í..:
TAKK FYRIR!
http://www.surveymonkey.com/s.aspx?sm=rgjisFiBzL4MeLKIGWWQDw_3d_3d
Góða helgi,
Vonandi kemst ég á netið í Matagalpa og get þá skrifað meira.
Ástarkveðja, Jónína
»
12.03.2008 17:45:40 / joninatryggva
Jahá, komin með krullur, Mjög ánægð með þær  Var pínu smeyk á tímabili því þegar ég mætti og sagði hvað ég ætlaði að láta gera þá sagði daman að það væri ekki til efnið til að festa krullurnar, svo fóru þær nokkrar út í horn að tala saman og svo til baka, og sögðu, jújú þetta er allt í góðu.. En það virðist allt hafa verið gert eins og það átti að vera. Sem betur fer var ein kona þarna sem kúnni sem talaði ensku og gat hjálpað mér að lýsa nákvæmlega hvað það var sem ég vildi, það er ekki sniðugt í svona tilfellum að vera nokkurn vegin viss um hvað er verið að segja og segja bara "sisi, claro!" Betra að vera alveg viss  Og eins og ég sagði, er bara mjög ánægð með útkomuna Veit ekki hvort ég nái að setja inn myndir áður en ég kem heim, en það er hvort sem er stutt í það svo þið getið séð nýja stílinn minn þá! Er að fara að borða hádegismat núna, alveg að deyja úr hungri, ég er alltaf svöng hérna, hélt að einmitt að það yrði öfugt út af hitanum hérna, en svo er ekki. Við fáum alltaf rosa góðann heitann mat hérna á skrifstofunni í hádeginu, very good! Verið svo duglegri að kommenta!! Vil heyra líka hvað þið eruð að gera  Bæ í bili xxx
»
10.03.2008 16:51:59 / joninatryggva
Jæja, ég hef frá ansi mörgu að segja núna, sjáum til hversu mikið ég næ að skrifa.. Það gekk mjög vel í Hondúras, það voru allir rosa ánægðir með námsskeiðið sem ég hélt  Við vorum á stað sem er fyrir utan San Pedro Sula (ca 2 tíma). Þetta var rosa flott , stórt afgirt svæði þar sem eru kaffiplöntur ( ca 900 m yfir sjávarmáli) og fiskeldi, plönturæktun, framleiðsla á hunangi, rannsóknarstofur þar sem verið er að gera tilraunir með að setja mismunandi tegundir af kaffibaunum saman í eina tegund til að þróa nýjar plöntur sem bæði bragðast vel og þola vel sjúkdóma. Soldið erfitt að útskýra, sérstaklega á íslensku, er búin að heyra og læra svo margt tengt kaffinu á ensku hérna, og hef bara ekki hugmynd hvernig ég geti þýtt sum orðin yfir á íslensku.. :/ Þetta var allt mjög flott og ég smakkaði mjög gott kaffi þarna. Fékk prufu með mér heim af pacamara sem var alveg ótrúlega gott sem espresso og ætla að leika aðeins með það Mjög indælt og skemmtilegt fólk sem ég kynntist þarna, allir rosa áhugasamir að læra og fyrsta daginn voru þau áfram langt fram á kvöld að æfa sig. Við gistum öll þarna á þessum stað og borðuðum þar líka svo að sá í raun ekkert annað en þetta svæði. Við fórum þó eitt kvöldið að borða á veitingastað þar sem ég fékk alveg heilan fisk djúpsteiktan með haus og öllu, ekkert smá góður! Á leiðinni þangað keyrðum við fram hjá kakóakri. Við töluðum við bóndann og ég fékk leyfi til að fá eina kakóbaun með mér. Hún var ekki alveg orðin vel þroskuð, var græn á lit, en við opnuðum hana og ég japlaði á ávextinum allt kvöldið. Alveg ótrúlega gott og ekki líkt neinu sem ég hef áður smakkað og get því ekki lýst bragðinu fyrir ykkur. En þessi slykja sem umlykur baunirnar sjálfar er hvít á lit og þegar ávöxturinn er vel þroskaður þá er þetta mjög sætt á bragðið en þar sem að hún var ekki fullþroskuð þá var þetta pínu súrt líka, væri svo til í að geta borðað þetta oftar, nammnamm!! Á föstudaginn þegar námsskeiðið var búið fékk ég að vita að það ætti að taka viðtal við mig á aðalútvarpsstöðinni í Hondúras út af þessu námsskeið sem ég var að halda! Ok ekkert mál, nema hvað að ég er ekki orðin svo góð í spænskunni að geta skilið og svarað í gegnum síma.. Svo að planið var að láta Guillermo hlusta á spurninguna, þýða fyrir mig, ég mundi svara í símann á ensku og svo myndi hann þýða það.. Úff, ekki alveg að virka  Við gerðum þetta með eina spurningu og svo svaraði hann bara beint!! Hann er búinn að vera svo oft túlkur fyrir mig að hann kann þetta allt saman fram og til baka sjálfur. Við þurftum að leggja af stað kl. þrjú á laugardagsmorgninum þar sem að rútan lagði af stað frá San Pedro Sula kl. fimm. Það var alveg full rúta á leiðinni heim og því tók ansi langan tíma að fara yfir vegabréfin og ferðatöskurnar á landamærunum, við komum því ekki fyrren kl. sex til Managua og þá var orðið of seint fyrir mig að fara til San Juan del Sur og gisti ég því hérna, hjá mömmu Robertos og fór snemma í gærmorgun í staðinn til San Juan. Það var íslenskur maður í sömu rútu frá Hondúras, alltaf fyndið að hitta íslending svo langt frá heimaslóðum. Þessi maður er örugglega svona um fimmtugt og sagði mér að hann hefði bara sagt upp starfi sínu heima í haust og ákvað að fara í sjö mánaða reisu og alla Mið- og Suður Ameríku. Hann er nú þegar búinn að vera á ferðalagi í fimm mánuði og er rosa ánægður með túrinn. Flott hjá honum Við vorum með smá kennslu í gærmorgun fyrir þjóna á veitingastað í San Juan del sur, alveg ótrúlega fallegur staður sem er nálægt landamærum Costa Rica, vorum búin að því um hádegi, borðuðum ótrúlega góðann mat á þessum veitingastað og sóluðum okkur og syntum í sundlauginni seinnipartinn, la vie est belle Ég gleymdi myndavélinni minni í Managua og tók því engar myndir sjálf í Hondúras en ég fæ nokkrar frá konu sem ég kynntist þarna og set þær inn á síðuna þegar ég fæ þær. Núna erum við á skrifstofunni að bíða eftir fundi með Roberto til að ákveða hvert plan vikunnar verður, spurning hvað gerist næst.. Held að við munum fara í vikunni til El Quetzal að þjálfa fólkið þar og prófa mismunandi ristanir og blöndur. Það verður nefnilega keppni hérna eftir tvær vikur þar sem senda á inn espressoblöndur og mun Nicaraguameistarinn nota blönduna sem vinnur á heimsmeistaramótinu, svo það er mjög gaman að fá að taka þátt í að rista og velja hana og vonandi vinnum við !! Gaman að heyra í ykkur mamma og pabbi, og elsku Nonna mínum líka í gær  Nonni var að sýna leikrit númer tvö á þessu skólaári í síðustu viku og ég missti augljóslega af henni  En það gekk rosa vel hjá honum að sjálfsögðu, langflottastur alltaf að mínu mati Roman fór í klippingu í morgun áður en við komum á skrifstofuna og okkur Heili leist mjög vel á stofuna og pöntuðum tíma þar á morgun. Ég ætla að fá mér permó  Sjáum hvernig það kemur út, er komin með nógu sítt hár fyrir það núna, vona að ég verði ánægðari með útkomuna en pabbi , hann fékk sér nefnilega permó þegar hann var ungó! Mjög fyndin saga Vona að þið hafið það öll gott, passið að klæða ykkur vel í kuldanum Ég nýt sólarinnar hérna alveg í botn þangað til ég kem til ykkar, ekki nema rétt rúmar tvær vikur í það! Adios
»
07.03.2008 04:16:41 / joninatryggva
Haehae, allt rosa gott ad frétta hédan! Ferdalagid gekk rosa vel, thad tók 13 tíma ad komast hingad, en thad var alls ekkert eins slaemt og bjóst vid.. Thad er allt alveg ótrúlega flott hérna, kaffilega séd.. Segi betur frá thví seinna. Er ekki med tolvuna mína hérna og fékk bara adeins ad fá lánada hjá einum hérna. Erum í mjog oruggu umhverfi, um klukkutíma akstur frá San Pedro Sula, og thetta er alveg afgirt svaedi thar sem vid búum og thjálfunin fer fram hérna á sama stad. Laet thetta naegja í thetta skiptid, vildi bara láta vita af mér Fer svo beint til San Juan del Sur á laugardaginn, semsagt eftir 13 tíma ferdalagid hédan fer ég beint í thriggja tíma akstur thangad! En Heili og Roman fara thangad á fostudaginn til ad thjalfa thar. En thad er svo fallegt tharna, vildi ad ég gaeti sett inn myndir til ad sýna ykkur Ég veit thví ekki alveg hvenaer ég kemst aftur í tolvu, ef ekki á sunnudag, thá á mánudag.. Knús og kossar til ykkar allra Janina
»
03.03.2008 22:54:57 / joninatryggva
Ég er komin með nýjan síma og nýtt símanúmer, svona getur komið sér vel að þekkja einn af aðalmönnunum hjá stærsta símafyrirtækinu hérna, þar sem að hinn bilaði þá var mér reddað nýjum og miklu flottari síma  Númerið er: (00505) 641 0990 Núna fær Roman greyið frí frá því að vera símadaman mín Reynið samt að hringja ekki öll á sama tíma, hehe, I wish
»
03.03.2008 19:07:00 / joninatryggva
Hæhæ, var að enda við að kveðja prins Henrik. Það gekk bara rosa vel og allir voða ánægðir með kaffið og þjónustuna..  Við vorum öll búin að stríla okkur upp en svo var hann sjálfur bara í hawaii skyrtu og sumarbuxum. Það eru allir sem búa hérna svo vanir hitanum og klæðast alltaf síðbuxum og skyrtum í vinnunni en ég veit hvernig það er fyrir okkur á Norðurlöndunum að koma í svona hita, viljum vera í sem þægilegustum fötum. Hann er greinilega eins og við hin og kýs þægindi fram yfir formlegheit, þetta var svosem heldur ekkert beint formlegt hérna.. Ég spurði hvort ég mætti fá mynd af mér með honum á frönsku að sjálfsögðu, " mais bien sur" svaraði hann  Er ekki enn komin með snúru fyrir myndavélina Ég kem heim til Íslands þann 27.mars, eða í raun að morgni 28.mars þar sem að ferðalagið tekur rúman sólahring. Það eru því ekki nema rúmlega þrjár vikur eftir af dvöl minni hérna. Svo endilega láttu mömmu þína vita af því Maggy  Um leið og ég kem heim fer ég svo á fullt í að klára skilaverkefni sem við þurfum að skila stuttu eftir að ég kem heim og svo held ég að prófin byrji í lok apríl, svo að það verður maraþonslestur þær vikur! Síminn minn er bilaður Marta en ég held að ég fái nýtt númer í dag og set það hér inn um leið og ég get. Ég legg af stað til Hondúras snemma á miðvikudagsmorgun og veit því ekki hvort símakortið virki þar líka, kemur í ljós. Guillermo, einn af þeim sem sér um dvöl okkar hérna mun fara með mér svo ég verð að sjálfsögðu ekki ein þarna. Mamma ég held að það sé ekki ástæða til að hafa áhyggjur, þeir plana allt mjög vel hérna fyrir okkur. Helgin var annars góð, við fórum á Masaya markað á laugardarginn, ótrúlega margt fallegt þar. Allt svo litríkt og flott! Keypti ekkert voða margt en mun reyna að komast þangað aftur áður en ég kem heim og verð þá duglegri. Við Heili þyrftum að komast þangað bara tvær því við vorum þarna ásamt tveimur karlmönnum og þeir voru ekkert æstir í að vera eins lengi og við hefðum viljað vera Í gær áttum við svo mjög afslappaðan dag í klúbbhúsi sem Roberto og fjölskylda hans eru meðlimir í. Þar er alveg ótrúlega flott gymm, við púluðum smávegis þar og svo sóluðum við okkur og syntum í rosa fínni sundlaug, algert æði og ég fékk besta pina colada sem ég hef smakkað, nammnamm! Ég og Heili erum svo að fara núna á fund þar sem kaffibarþjónarnir sem tóku þátt í keppninni munu vera og þar fá þeir afhent dómarablöðin sín og við eigum að útskýra hvað þau gerðu rangt o.s.frv. Við verðum sóttar í það eftir smástund svo ég læt þetta nægja í bili. Vona að þið hafið það gott, Annars er Roman með númer hérna, ég skrifaði það vitlaust síðast : (00505) 948 11 21 , við erum oftast öll saman og því ætti að vera hægt að ná í mig í þennan síma þangað til ég verð komin með mitt eigið númer.
»
29.02.2008 21:44:28 / joninatryggva
Hæhæ, merkilegur dagur í dag ekki satt?! Ekki nema sex sinnum sem ég hef upplifað þennan mánaðardag  Gísli frændi á afmæli í dag veit ég, minnir að mamma hafi sagt að þetta hafi verið pínu leiðilegt þegar hann var yngri að eiga í raun bara afmæli á fjögurra ára fresti.. Það er annars allt gott að frétta héðan. Okkur líður mjög vel hjá mömmu Robertos. Það er klúbbur í næstu götu þar sem við komumst í tækjasal og sundlaug, algert æði. Við fáum morgun og kvöldmat hjá henni, hún er með þjónustustúlku sem er nýbyrjuð hjá henni, soldið sein að læra greyið konan og ekki besti kokkur í heimi, en voða indæl. Sú gamla er alveg að tjúllast á henni, finnst hún ekki gera neitt rétt. Soldið spes að hafa svona þjónustufólk í kringum sig, alls ekki vön því, en flestir sem eiga smá pening hérna eru með þjónustufólk, þar sem að þau fá, að ég held, ekki meir en 100 dollara í mánaðarlaun, pælið í því! Þar sem að við erum öll vön að ganga frá okkar eigin diskum eftir matinn, almenn kurteisi, og gerðum það fyrsta daginn en vorum beðin að gera það ekki, hún sagði að í raun væru það neikvæð skilaboð til þjónustustúlkunnar um að hún standi sig ekki nógu vel.. Pínu skrítið fyrir mann! Ég var annars að enda við að kveðja alveg yndislegan mann! Hann er aðalsmakkari Cafe Don Pacos, alveg ótrúlegt hvað hann er fljótur og næmur á bragð. Við vorum að kenna honum alla vikuna að laga og smakka espresso og cappuccino. Hann er svo nákvæmur og áhugasamur og var svo fljótur að læra. Hann er svo þakklátur fyrir það sem við erum búin að kenna honum, en hann skilur ekki að hann er búinn að kenna okkur alveg fullt sjálfur. Búin að vera mjög fyndin vika samt vegna þess að það hefur ekki verið tiltækur túlkur og við höfum notað það litla sem við kunnum í spænsku ásamt táknmáli og leiklist til að gera okkur skiljanleg. Mjög lærdómsríkt samt, besta leiðin til að læra tungumál  Hérna er mynd af honum: Encidro Thomas:  Þar sem við höfum verið á hóteli hingað til þá er ég núna fyrst að upplifa það sem ég var vöruð við af Maggý og manninum hennar ( Maggý er héðan en býr á Íslandi) en það var að það væri bara kalt vatn til að sturta sig með. Á hótelinu hefur alltaf verið nóg til af heitu vatni en hjá Mariu þar er bara ískallt vatn. Þó svo að það sé rosa hlýtt úti þá er ísköld sturta samt ekki beint notó. Ég harkaði það af mér í gær en í morgun gafst ég upp um leið og litla tá fékk smá dropa á sig. Hárið mun ekki þola annan þvottalausan dag svo ég verð að pína mig í fyrramálið, verð greinilega bara að venjast þessu, vesgú! Veit ekki alveg planið um helgina, Roberto er búinn að vera í burtu í viku en kemur heim á morgun og vildi hitta okkur þá, svo að við gerðum því engin plön fyrir helgina... Ég fékk að vita í gær að ég mun fara til Hondúras næsta miðvikudag og verð fram á laugardag að þjálfa kaffibarþjóna. Ég var valin af okkur þremur þar sem ég er sú eina sem hef keppt á heimsmeistaramóti og hef ágæta keppnisreynslu. Það verður ábyggilega mjög gaman. Hondúras mun halda sína allra fyrstu keppni í ár svo að ég þarf að byrja alveg á byrjun. Við förum þangað í rútu sem mun taka um tíu tíma, en er víst voða fín rúta, loftkæld með WC og TV Svo er verið líka að ræða þann möguleika að ég fari til Guatemala að þjálfa þrjá aðila (frá : guatemala, el salvador og nicaragua) sem munu keppa á heimsmeistaramótinu í sumar. Það er enn bara hugmynd en sjáum til hvernig það fer... Góða helgi!!
»
28.02.2008 21:15:36 / joninatryggva
 Benedikt besti bróðir í öllum heiminum á afmæli í dag! Til hamingju kæri bróðir! Í dag eru þrettán ár síðan hann fæddidst. Ég var sjálf þrettán þá. Finnst svo miklu styttra síðan það var , finnst ég sjálf líka alltaf vera rétt rúmlega tvítug  En tíminn flýgur eins og tígur.. Eða eithvað svoleiðis  Vona að þú hafir átt góðann dag Benni minn. Svo færðu pakkann þinn þegar ég kem heim Þúsund kossar, Þín systir
»
27.02.2008 20:36:17 / joninatryggva
Já, í gærmorgun þegar við vorum að á leiðinn út þá vorum við beðin um að pakka dótinu okkar og losa herbergið. Mér skilst að Roberto sé með sérdíl þar og borgar því aðeins minna en venjulegir gestir. Þar sem að það var eftirspurn eftir herbergjum okkar þá höfðum við ekki lengur forgang  Við erum núna flutt til móður Robertos. Það er voða fínt að vera hjá henni, það eina er að það er ekki nettenging eins og á hótelinu sem er allt í góðu mín vegna þar sem við komumst alltaf á netið hérna á skrifstofunni. Mamma Robertos heitir Maria Tereza, mjög fín kona, frekar ákveðin og hlutirnir eru einungis eins og hún vill hafa þá, no other way Hún sagði að henni fyndist gaman að fá að hafa okkur, þar sem öll börnin eru flutt að heiman og svo lést maðurinn hennar fyrir átta mánuðum síðan. Erum búin að heyra margar góðar sögur um þann mann, Frank Bendana, hefði verið gaman að geta hitt hann. Ég segi söguna hans seinna.. Í morgun komu kúnnar frá Organic veitingastað sem er hérna. Þau vilja hafa allt lífrænt og hafa verið að selja lífrænt ræktað kaffi frá öðru fyrirtæki hérna. Þau komu með það og eftir að hafa smakkað allt "okkar" kaffi þá í lokin lagaði ég espresso og cappuccino úr þessu kaffi. Það var í einu orði sagt HRÆÐILEGT! Ég og eigandinn vorum þau einu sem smökkuðum það, hún er væntanlega vön því að drekka dags daglega og líkami hennar kannski orðinn vanur þessu eitri. En mér leið virkilega eins og hefði drukkið eitur. Er rétt svo farið að líða betur núna, tveimur tímum síðar  Alveg ótrúlegt að það skuli vera hægt að selja vöru undir því sem flestir setja samasemmerki við gæði þ.e. lífrænt ræktað, en búa til eitur úr því með því að brenna baunirnar. Örugglega eru bæði ræktunin og vinnslan á baununum ekki góð heldur svo eru þetta bara brunarústir! Ég er vön að geta smakkað og drukkið mikið kaffi í einu, en svona "eituráhrif" hef ég aldrei áður upplifað, ekki mikil hollusta þarna myndi ég segja. En sem betur fer ætla þau að selja Cafe Don Paco kaffi framvegis Ég held að ég sé ekki ennþá búin að minnast á það hér, en ég verð hérna til 27. mars í stað 5. mars. í byrjun sagðist ég nefnilega vilja vera hérna í 2 mánuði, en svo breytti ég um skoðun, aðallega út af skólanum og bað um að fá að vera í 6 vikur í staðinn til að vera ekki svo lengi í burtu. En þá var búið að bóka miðann í 2 mánuði. Roberto sagði að það yrði betra að breyta miðanum eftir að ég kæmi hingað, en svo er tíminn svo fljótur að líða og ég er ekki tilbúin að koma heim strax. Svo að ég ákvað að breyta miðanum ekki. Núna er ég því hálfnuð með dvöl mína hérna og á því nægan tíma eftir Það er soldið erfitt að fylgja kúrsunum í skólanum m.a. vegna þess að dagarnir eru frekar vel bókaðir en ég reyni mitt besta.. Svo kem ég heim og ligg yfir bókunum í mánuð og tek svo prófin Fékk eina hugmynd um daginn, og hún er sú að í stað þess að vinna heima á Íslandi eftir að prófin klárast og bíða eftir að Nonni klári skólann, þá gæti ég alveg eins farið til hans eftir prófin og unnið í London um sumarið.. Ég þekki nokkra í kaffinu þar og ætla að hafa samband við þau og athuga hvort þau geti hjálpað mér að finna eithvað.. Hvernig líst ykkur á þetta? Var ekki búin að minnast á þetta við mömmu og pabba einu sinni  Þetta yrðu ekki nema rúmir tveir mánuðir og Benni gæti komið í heimssókn og farið á fótboltaleik til dæmis, hvað segirðu við því Benni? Þetta er ennþá bara hugmynd, en get bara ekki hugsað mér að vera mikið lengur í burtu frá Nonna mínum Til ykkar tlc stelpna: ferðin sem ég var búin að segjast ætla að reyna að koma með í, ég er ekki viss um að það sé raunhæft  Mig langar líka frekar að safna meiri pening og geta verið lengur, ef maður er að fara svo langt á annað borð, þá sé ég núna að það er eiginlega ekki vit í öðru en að vera í soldinn tíma. Líka ef ég ætla að reyna að fá vinnu í London þá finnst mér tveir mánuðir vera lágmark ef ég er að því á annað borð.. Svo í bili segi ég pass.. Þó svo að mig langi mikið og veit að þetta verður æðisleg ferð hjá ykkur! Bæ í bili, Jónínan
»
25.02.2008 04:15:01 / joninatryggva
Erum að fara suður á morgun til San Juan del Sur og það plan virðist ætla að standa í þetta skiptið, leggjum af stað kl. sjö í fyrramálið svo ég fer að koma mér í háttinn fljótlega.. Við komum til Managua um hádegi í dag, gott að vera komin í hitann aftur, skítakuldi þarna upp í fjöllum. Ég svaf í ullarbol, flíspeysu, gammó, buxum og sökkum, vafði þétt að mér flísteppi og annað teppi ofan á það og var samt pínu kallt!! Það er auðvitað engin kynding og mikill raki, brrr. En það var rosa notó að vera þarna, rosa friðsælt og fallegt umhverfi. Það var hugsað voða vel um okkur. Fengum fínasta morgun, hádegis og kvöldmat sem donja Rosa sá um að elda ofan í okkur, nammnamm, gott að fá heimilismat, borðum oftast á veitingastöðum hérna í Managua. Mamma er samt alltaf langbesti kokkurinn að mínu mati Ég og Heili skelltum okkur á Hótel Holliday Inn í dag til að geta sólað okkur á sundlaugarbakkanum þar. Það er nefnilega engin sundlaug hérna á Hótel Rizzo og í þessum hita er algert æði að busla í sundlaug og sleikja sólina. Ég er loksins farin að fá ponsu lit á kroppinn, fer að ráðum mömmu og maka vel af vörn á mig hérna. Nicaraguabúum finnst samt alltaf jafn fyndið að sjá okkur sitja í sólinni alls staðar sem við förum, það eru allir aðrir skugganum. Spes líka sérstaklega í sveitinn að finna hvernig fólk starir á mann og nánast snýr sig úr hálsliði, ekki oft sem þau sjá hvíta glókolla þar.. Um fimmleytið áttum við rendez vous með Lilly, systur Robertos á skrifstofunni. Þar smökkuðum við bæði kaffið sem við erum búin að vera að rista síðustu daga, kom rosa vel út. Við smökkuðum líka kaffi sem kallast " Cafe Las Flores" en það er ekki gott, en samt kaupa mörg kaffihús og veitingastaðir það hérna  Við vorum að þessu í dag til þess að geta lýst og útskýrt fyrir hóteleigandanum sem við hittum á morgun muninn og af hverju hann eigi að kaupa Don Paco í stað Las Flores, ekkert mál að sannfæra hann um það, sérstaklega þegar hann fær að smakka sjálfur! Lilly sagði okkur áðan að á mánudag eftir viku muni Prins Henrik frá Danmörku koma í kaffiaðstöðuna sem Don Paco er með og mun vera hjá okkur í hálftíma að smakka kaffið. Ég held að hann sé eiginmaður Margrétar drottingar, er það rétt hjá mér? Ekki amalegt það, og þá get ég sjarmað hann með dönskunni minni, go' morgen kære prins Skrifa annað kvöld um San Juan del Sur, rosa spennt að fara þangað. Ætla að nota tímann á leiðinni og halda áfram að lesa fyrir frönskukúrsinn sem ég er í , þarf að skila ritgerð í vikunni.. Verið endilega duglegri að kommenta, ég vil heyra fleiri fréttir að heiman! Benni: takk fyrir að setja inn tónlistarlistann, þú sérð um alla aukafítusa á síðunni sé ég
»
24.02.2008 04:48:20 / joninatryggva
Eins og fyrirsögnin gefur til kynna, þá er nóg af kaffi hérna. Erum búin að smakka alveg óendanlega mikið af því síðustu daga. Og mikið af góðu kaffi  namminamm. Blandan sem við smökkuðum í fyrradag, þegar við vorum í Managua var alveg ótrúlega góð þrátt fyrir að hafa ekki fengið að bíða nógu lengi. Hún verður ábyggilega alveg geggjuð á mánudaginn. Við ristuðum því meiren nóg af þeirri blöndu í dag til að geta notað næstu daga í Managua. Hún innilheldur 50% maragoghype og 50% caturra, báðar héðan frá Matagalpa. Veit að sumum ykkar finnst ekkert gaman að lesa um þetta og botnið kannski ekkert hvað ég er að tala um en það verður bara að hafa það  Því ég er líka að nota þetta blogg sem dagbók fyrir sjálfa mig til að muna seinna meir.. Við Heili vorum komnar hingað í gær um kvöldmatarleytið. Þetta morgunverðarhúllumhæ fyrir fjárfestana tók lengri tíma en búist var við. Allt í góðu með það, það voru allir rosa ánægðir með gott kaffi. Þetta var bæði fyrir núverandi og vonandi tilvonandi þáttakendur í góðgerðarverkefni sem kallast "Operation Smile" og er systir Robertos í forsvari fyrir það hérna í Nicaragua. Þetta snýst um að veita krökkum sem eru holgóma eða vantar bút í munni eða vör aðgerð til að laga það. Eiginkona Donalds Trump var alveg í skýjunum með kaffið og fékk sér þrjá cappuccino, sagðist aldrei hafa smakkað jafn gott kaffi. Hún ætlar að kaupa espressovél og kvörn af Roberto og fékk smá kennslu frá mér þarna  Svo að yfirmennirnir voru ansi ánægðir með okkur, mission accomplished! Er því miður ekki með nafnsjöld hérna pabbi svo að ég verð bara að vona að þau fletti mér einvhern veginn upp ef þau vilja meiri kennslu.. Góður punktur samt hjá þér með kaffineyslu íslendinga og hugmyndina um að stúdera hvort ekki sé hægt að nýta sér eithvað þaðan í öðrum löndum. Veit ekki hvort þið voruð búin að taka eftir því en ég setti myndir inn um daginn undir "fleiri myndir" Ég set lýsingar við þær á eftir, ef ég nenni. Ég fann ekki snúruna til að hlaða myndum inn á tölvuna áður en ég fór frá Íslandi svo að þær myndir sem ég hef tekið hingað til eru bara á vélinni minni, ætla að reyna að redda mér nýrri snúru því ég er að verða búin með plássið á kortinu mínu. Roman hefur sent mér þessar myndir svo að ég geti sýnt ykkur eithvað héðan Planið á morgun er að leggja frekar snemma af stað til Managua, því við þurfum að undirbúa okkur fyrir mánudaginn. Þá leggjum við af stað snemma til San Juan del Sur þar sem við verðum með sölusýningu fyrir 15 manns. Þetta hótel er í dag að nota mjög lággæða kaffi. Á morgun erum við að fara að smakka það til að geta lýst því, án þess að segja bara : "þetta er vont" heldur af hverju það er ekki gott og leyfa þeim svo að smakka okkar góða kaffi  og vonandi velja þau gæði framyfir verð. Á þriðjudagsmorgun var svo búið að ákveða fyrir löngu að við fengjum að skoða verksmiðju Flor de Canja, romm sem er framleytt hérna, mjög gott! Við höfum samt ekki heyrt meira af því en kemur í ljós hvernig það fer.. Væri rosa gaman að fá að sjá það. Ég er annars farin að geta babblað ansi mikið á spænsku og skil alveg slatta, þeir eru voða imponeraðir hérna á mér  Ég þakka íslenskunni og frönskukunnáttunni fyrir það. íslenskan nýtist mér hvað hreiminn varðar og mörg orð eru svipuð og í frönsku. Ég kem með þér í spænskutíma mamma þegar ég kem heim, hvernig gengur þér annars?? Það er allt svo ódýrt hérna að ég býst bara við að koma með ágætisafgang heim. Þar sem að við borgum hvorki fyrir gistingu né mat þá endist vasapeningurinn vel. Fórum í matvörubúð á leiðinni heim áðan, í andyrinu var íssali og þar við hliðina voru tveir litlir sætir strákar að horfa í borðið. Þeir spurðu mig hvort ég vildi kaupa ís fyrir þá. Ég gerði það, spurði hvort þeir vildu jarðaberja, "já takk" svöruðu þeir skælbrosandi. Gaman að gleðja lítil hjörtu í smástund! Segi þetta gott í bili.. Buenas noches xxx p.s. síminn minn virkar ekki þessa dagana, held það sé vegna þess að ég var inneignarlaus í meira en fimm daga. Reyni að fara í það sem fyrst. Svo mamma og pabbi og Nonni, og auðvitað þið hin ef þið tímið, þá er síminn hjá Roman : (00505) 948 21 11 þannig að ef þið þurfið að ná í mig þá getið þið hringt í þetta númer
»
22.02.2008 04:48:16 / joninatryggva
Jæja, erum búin að vera í sveitinni í Matagalpa á "farminu" hans Robertos í tvo daga, alveg geggjað að vera þar. Ég og Heili erum núna í Managua þar sem við þurfum að laga kaffi í fyrramlálið fyrir 40 fjárfesta í fyrirtækinu og einhverri góðgerðarstarfsemi hérna, ekki alveg með smáatriðin á hreinu. Veit samt að sonur Donalds Trump verður þarna, úllala  Enda vorum við sendar í verslunarleiðangur áðan því gallabuxurnar og strigaskórnir okkar voru ekki alveg málið fyrir þessa uppákomu! Vorum að koma heim, alveg búnar á því, höfðum bara klukkutíma til að finna okkur skó og svartar buxur, hægara sagt en gert skal ég segja ykkur. Ég keypti rosa flotta MJÖG háhælaða skó sem ég á örugglega bara eftir að geta verið í þennan eina klukkutíma á morgun  og svo kannski notað þá heima við þegar á vil ná Nonna upp að höku til tilbreytingar En síðustu tveir dagar í sveitinniu voru alveg æði eins og ég sagði áðan. Við erum búin að cuppa alveg fullt af kaffi og fengum svo að rista sjálf það kaffi sem okkur fannst best. Við ristuðum eina tegund fyrir pressukönnu og filter og svo erum við búin að búa til eina espressoblöndu sem við ætlum að prófa í fyrramálið (það er samt of stutt síðan hún var ristuð en sjáum til.. getum ekki beðið með að prófa..) Svo erum við með tvær aðrar sérstakar tegundir ristaðar sem espresso. Búnir að ver mjög lærdómsríkir dagar og gefandi, kaffilega séð, fyrir okkur. Smökkunarmeistarinn hans Robertos, Encidro Thomas, sem vinnur í La Pita, en þar er þurrmillan ( ca 45 mín frá kaffiekrunni) er svo glaður yfir að hafa fengið okkur í heimssókn og segist hafa lært svo mikið á því. Ekkert smá gaman að fá svona mikið sjálfur en á sama tíma að geta gefið annað jafn mikilvægt til baka  Það er þess vegna sem svona "internship" er svo sniðugt. Við erum, held, ég með þeim fyrstu sem gera svona, en ég held að þetta muni verða mjög algengt á næstu árum og muni hafa mikil áhrif á kaffiþróun. Roman og Fernando urðu eftir í Matagalpa, en við förum svo aftur þangað á morgun og verðum fram á sunnudag þar. Við hittum Erwin frænda Robertos áðan. Hann á þrjár kaffiekrur í Matagalpa og bauð hann okkur að koma í heimsókn um helgina til sín á einhverja af þeim, vona að við getum gert það. Það er alveg ótrúlega fallegt þarna í El Quetzal (en það heitir bærinn hans Robertos) og mér finnst alltaf jafn gaman að keyra til Beneficio La Pita ( sem er þurrmyllan) því það er svo ólýsanlega fallegt, er varla enn að trúa því ennþá að ég sé hérna! Það er allt voða pottþétt í kringum það að við séum þarna, við fáum morgun, hádegis og kvöldmat þarna og höfum það rosa gott. Það er reyndar soldið kallt, ekki nema 15 stiga hiti á daginn og alveg skítkallt á kvöldin. Sem betur fer tók ég flíspeysuna sem ég fékk í jólagjöf með, takk mamma og pabbi!  Roberto er með alveg fullt af fólki í vinnu og á meðal þeirra eru ca 13 vopnaðir verðir sem gæta okkar á meðan við erum í húsinu. Brá pínupons fyrsta kvöldið þegar ég leit út um gluggann og sá mann með riffil, labba meðfram húsinu. En gott samt að vita af því að það sé verið að passa upp á mann En þetta er mjög algengt hérna að það eru vopnaðir verðir við allar helstu byggingar og fyrirtæki. Mér finnst samt soldið erfitt að venjast því að sjá hús fólks umkringd risa girðingum með gaddavír. Þannig býr t.d. Guillermo og Roberto en svona er þetta hérna.. Læt þetta nægja í bili, Það er frekar lélegt netsambandið í sveitinni svo að ég skrifa kannski ekki aftur fyrr en á sunndag. Hafið það gott þangað til, xxx
»
19.02.2008 04:33:35 / joninatryggva
Já eins og fyrirsögnin gefur til kynna, þá fór ég í fyrsta skipti í ræktina hérna í dag. Það var soldið skondin upplifun.. Ég upplifði það sem að Þórhallur markaðsfræðikennari sagði einu sinni í tíma um líkamsræktastöðvar á Íslandi fyrir ca 15 árum síðan. Hann sagði að það hafi nánast einungis verið svaka vöðvabúnt að pumpa á fullu í rosa sveittum sal.. Akkúrat þetta fékk ég að sjá í dag, ekkert smá fyndið. og ein af fáu konunum sem voru þarna var í mega eighties dressi, s.s. leggings og g-streng sundbol utanyfir leggings Mér finnst miklu skemmtilegra að fara í tíma heldur en að vera í salnum og var svo heppin að hálftíma eftir að ég mætti þá byrjaði danstími. ótrúlega skemmtilegur tími og var alveg rennandi eftir hann. Góð tilfinning að fá smá útrás því maður hreyfir sig annars ekki mikið hérna, erum alltaf keyrð allt sem farið er, og ég er vön því að labba mikið heima.. Finn samt núna strax að ég mun finna vel fyrir þessu á morgun.. Í morgun fengum við smá fyrirlestur um kaffiframleiðsluna hérna, hversu mikill partur hún er af heildarútflutningi landsins og hversu margir vinna við það o.s.frv. Fullt af tölum og gröfum sem var mjög áhugavert að sjá en ætla ekki að fara að þylja upp hérna  Fyrir 10 mínútum síðan var planið frá morgundeginum og fram á sunnudag að vera á kaffiakrinum og í þurrmillunni að prófa mismunandi brennslustig á kaffinu. En þetta breyttist allt með símtali sem ég var að fá.. Eins og svo oft áður þá er sjaldnast sem plön endast hérna Nýja planið er að við verðum þarna fram á fimmtudag í stað sunnudags. vegna þess að á föstudaginn koma einhverjir læknar hingað á skrifstofuna þar sem kaffiaðstaðan er og við eigum að laga kaffi fyrir þá og tala um kaffið við þá.. Svo förum við á mánudaginn til San Juan del Sur með henni til að hitta viðskiptavin með kaffið sem við ristuðum í þurrmillunni, en þar sem við fáum í raun bara rúmlega einn dag, þá verður það soldið happa glappa hvort vel tekst til á svo stuttum tíma. Sjáum til hvort þetta nýja plan haldist eður ei.. Eins og ég hef sagt áður þá er þetta eithvað sem við þurfum greinilega að venjast hérna því þetta gerist nánast á hverjum degi, að plönin breytast Jæja, ætla að koma mér í háttinn, þarf að pakka fyrir morgundaginn.. Sendi örugglega smá pistil úr sveitinni, það er víst þráðlaust net þar! Ástarkveðja, Jónína til mömmu: já ég lofa að vera dugleg að nota flugnaspreyið! p.s. það er rosa gott veður hérna, aðeins hlýrra en heima held ég
»
Síður: 1 2
|
Heimsóknir
Í dag: 2 Alls: 10856
|